Erum komin af stað
23.11.2006 20:10:23 / kyndill

Gönguferð

Mér þykir miður að tilkynna að áætluð ferð næsta laugardag verður ekki skemmtiferð að renna okkur. Vegna óviðráðanlegra ástæða svo sem enginn almennilegur snjór í okkar nánasta umhverfi, munum við ganga á Esjuna á laugardaginn. Mæting í hús á slaginu ellefu og lagt af stað örfáum mínútum síðar. Allir að mæta vel klæddir og hressir og tilbúnir til að fara á toppinn.

Hrólfur


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 22:28:49 / kyndill

Dagskrá og næsti fundur

Næsta mánudag verður almennur fundur hjá okkur og það er skyldumæting á hann. Við þurfum að ræða um mætingarskyldu sem og lögð verður fram dagskrá. Dagskráin er líka komin á heimasíðuna og er linkur á hana á sama stað og stendur gestabók og dagbók hérna uppi í vinstra horninu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 20:31:35 / kyndill

Nýr vetur

Ok þá er komið að því að mæta aftur á fundi í aaaaaaaallan vetur. Ég sendi emil á alla sem ég var með emilinn hjá og ef einhverjir fengu hann oftar en einu sinni þá bara fyrirgefið mér elskurnar mínar en ég er ákaflega tölvuhamlaður einstaklingur. Alla vega þá er fyrsti fundurinn á mánudaginn 18. september eða eftir nákvæmlega eina viku og allir að mæta. Sérstaklega ef þið viljið fá breyttan fundartíma í framtíðinni. Alla vega við ætlum aðeins að fara yfir stöðuna því eins og emillinn sagði þá misstum við Ástu í barneignir (til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn). En það þýðir ekkert að gráta, bara taka vel á móti honum Magga sem kemur í hennar stað sem umsjónarmaður.

Ef svo kann að vera að ég hafi ekki emilinn hjá öllum þá verða þeir sem þetta lesa og hitta á hina að láta orðið ganga. Eeeeníhú... Allir að mæta hressir og kátir með allt sitt á hreinu á mánudagskvöldið næsta klukkan 20. Jebb, á slaginu átta og ekki mínútu seinna...

Hrólfur


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 15:27:39 / kyndill

Landshlutamót

Sæl og afsakið stuttan fyrirvara
 
Landshlutamót unglingadeilda verður haldið núna um helgina á Reykhólum (dagskráin er hér fyrir neðan). Þetta er reyndar á aðal sumarleyfistímanum og fyrirvarinn er mjög stuttur en ef það er nægur áhugi þá verður farið. Ekki þarf að leggja af stað fyrr en um kvöldmat á föstudegi (sveitin sér um að koma öllum fram og til baka) og komið er til baka á sunnudegi. Kostnaður er 3000kr og innifalið í því er tjaldstæði, grillveisla á laugardegi og sund.
 
Við þurfum að skrá okkur á morgun þannig að ég hringi í kvöld í þá sem ég hef ekki heyrt í til að athuga með þátttöku (þið getið sent mér póst eða hringt í 895-7059 eða 566-8844 fyrir kl 5 eða eftir kl 7 ef ykkur vantar frekari upplýsingar)
 
kveðja
Ásta Jenný
 
Landshlutamót unglingadeilda
Reykhólum 2006

Dagskráin er sem hér segir:

Föstudagur 21.júli

Mæting á mótssvæðið og koma sér fyrir
Kl. 22:00 Umsjónarmannafundur


Laugardagur 22.júlí


Kl. 07:00 Ræs - allir borða morgunmat og bursta tennur
Kl. 08:00 Póstavinna
Kl. 10:00 Póstavinna
Kl. 12:00 Matur
Kl. 13:00 Póstavinna
Kl. 15:00 Póstavinna
Kl. 17:00 Frjáls tími, tilvalið að fara í sund
Kl. 20:00 Grillveisla

Kl. 21:30 leikir og sprell


Sunnudagurinn 23.júlí

Frágangur á mótssvæði
óvissuferð
Heimferð


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 15:12:34 / kyndill

Síðasti fundur vetrarins

Síðasti fundur vetrarins verður í kvöld klukkan 8.

Við látum ykkur svo vita þegar við höfum einhverjar upplýsingar um landshlutamótið í sumar

kveðja

umsjónarmenn


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 12:55:39 / kyndill

Myndir úr göngunni

Jæja þá eru komnar inn myndirnar úr gönguferðinni okkar úr Sleggjubeinsskarði inn í Reykjadal.... http://www.flickr.com/photos/udkyndill/sets/


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 19:57:51 / kyndill

dagskrá

Dagskráin fyrir fundina í maí er komin

mán 8. maí - ganga

mán 15. maí - skyndihjálp, ofkæling

mán 22. maí - sig, mætið í þægilegum fötum (ekki gallabuxum og hælaskóm)

mán 29. maí - hvernig á að búa sig fyrir langar göngur, búnaður, matur, hvernig á að pakka o.fl.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 19:54:51 / kyndill

Ganga á laugardaginn

Á laugardaginn verður gengið frá Hengli og yfir í Hveragerði með viðkomu í heitum læk þar sem hægt er að baða sig.

Mætið upp í hús klukkan 10, vel klædd, með nesti og sundföt


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 21:28:39 / kyndill

Næsti fundur

Áður en ég gleymi því allveg þá er planið að fara útúr húsi næsta mánudag svo endilega að koma klædd eftir veðri. Nó gallabuxó!!!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 16:30:22 / kyndill

1. Maí

Það gleymdist á síðasta fundi sú staðreynd að næsta mánudag er að sjálfsögðu 1. maí eða verkalýðsdagurinn. Þannig að sá fundur fellur niður, vinsamlegast látið það berast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 19:57:19 / kyndill

Myndir

Ok ég veit að þetta tók dáldinn tíma en tölvukunnátta mín er ekki uppá svo marga fiska. En alla vega þá get ég með stolti tilkynnt það að myndir frá ferðinni eru komnar á flunkunýja myndasíðu unglingadeildarinnar. Smellið hér til að kíkja. Njótið vel og takið líka eftir linkinum hér til hliðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 16:27:42 / kyndill

Sleeeeeeeðaaaafeeeeeeeeeeeeeeeerð

Góð vísa er aldrei of oft kveðin sagði einhver víst einhvern tíma og nú er svo komið að ég ætla að japla soldið meira á því sem kom fram á síðasta fundi. Líka fyrir þá sem ekki mættu.:evil: En já, sleðaferðin verður næsta laugardag eða þann 15. apríl og er mæting á slaginu kl 8 uppí hús. Farið verður annað hvort á Mýrdalsjökul eða Langjökul, fer eftir veðri. Þið verðið að hafa með ykkur gott nesti yfir daginn og vera einstaklega vel klædd. Gallabuxur eru bannaðar. Svo má ekki gleyma að taka eitthvað til að renna sér á líka. Snjóþotu, skíði, rassaþotu eða eitthvað. Og auðvitað ekki gleyma að taka með ykkur svona eins og kíló af góðu skapi, það ætti að endast daginn og gott betur en það. Einnig eru einhverjir sem eiga eftir að staðfesta hvort þeir ætli að koma með og þið 3 verðið að gera það strax í gær. Síminn hjá mér er 862 0883 og ef þið ætlið að koma með þá verðið þið að láta mig vita fyrst uppá að fá pláss í bílnum. Þið megið ekki gleyma því að bíllinn tekur bara visst marga og sleðahópurinn er jú óhjákvæmilega að koma líka. Alla vega allir að láta sjá sig því að þetta verður bara ógeðslega gaman.:haha::haha:

 

- Hrólfur



 Svo kemur það líka þannig út að næsta mánudag er víst annar í páskum svo enginn fundur þá....


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 16:06:08 / kyndill

6. mars

mánudaginn 6. mars förum við í heimsókn í Skógarhlíðina (við munum skoða aðstöðuna hjá Landsbjörgu og slökkviliðinu).

Við eigum að vera mætt þangað klukkan 8 þannig að það verður farið úr húsi 20 mín áður. (sem sagt mæting um hálf átta)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 15:01:29 / kyndill

Leitarhundar

Afsakið hvað þetta kemur seint inn, enn fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða myndir frá hundunum þá voru síðurnar sem Kristín benti á eftirtaldar. www.snerpa.is/hundar sem er sveitin sem Kyndill á aðila í, öðru nafni Leitarhundar. Og www.bhsi.is sem er Björgunarhundasveit Íslands. Endilega allir að kíkja og líka að vera kurteisir og mæta á æfinguna sem okkur var boðið á. Æfingin er, fyrir þá sem eru búnir að gleyma því, næsta sunnudag og er mæting á slaginu 9:00. Þeir sem ÆTLA að mæta skulu hringja í Kristínu í síma 8684136 og láta vita af sér.

- Hrólfur


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 12:41:12 / kyndill

Fundur í kvöld

Munið eftir fundinum í kvöld - hundafólk kemur í heimsókn

Svo er stefnt að æfingu með þeim á sunnudaginn, nánar verður talað um það á fundinum í kvöld


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2